Wednesday, April 16, 2008

Kvikmyndagerð 2007-2008

Þessi færsla markar fimmtugustu og aðra færsluna mína – og að öllum líkindum þá síðustu – í vetur. Stóra planið átti reyndar að vera lokafærslan, en Siggi Palli pantaði eina í viðbót sem væri ætlað að líta yfir áfangann í vetur. Ég ákvað því að fara skipulega yfir alla þætti námskeiðsins í vetur, lið fyrir lið, og fara yfir hvað mér fannst gott og hvað mér fannst slæmt. Og hér kemur það:

Bloggið

Það allra allra besta við kvikmyndafræðina í vetur finnst mér vera bloggið. Ekki bara það, heldur langar mig líka að tilnefna þetta blogg sem skemmtilegustu heimavinnu sem ég hef fengið á allri minni skólagöngu. Þetta er ekki lítil heimavinna, (ef ég áætla að hver færsla eftir mig hafi verið tæp 400 orð þá hef ég skrifað um 20.000 orð í vetur!) en hún hefur veitt mér svo mikla þjálfun í að skrifa að sú reynsla er alveg ómetanleg.

Þessi þáttur námskeiðsins er í raun nær íslenskri ritun þegar ég pæli í því. Síðastliðið haust, þegar námskeiðið var að byrja, átti ég erfitt með að komast í gang með bloggið og hver færsla tók langan, langan tíma – þótt stutt væri. Nú þegar námskeiðið er búið er ritunarfærnin ekki sambærileg. Ég get framleitt bloggfærslur um allar kvikmyndir og örugglega flest allt sem ég hef skoðun á eins og ekkert sé.

Önnur vídd í blogghlutanum eru athugasemdir og lestrar frá öðrum. Ófáum sinnum hef ég lent á spjalli við kvikmyndafræði-kollega mína um atriði tengd bloggunum. Við lesum hverjir hjá öðrum, skrifum athugasemdir og það er einn stærsti hvatinn í að halda uppi fyrsta flokks bloggi. Hvatinn minn í vetur var til dæmis ekki að ná lágmarkinu, heldur að vera með eitt besta bloggið af öllum. Það kallar maður alvöru markmið og þessari upplifun og þessum metnaði hef ég ekki kynnst við skil á heimaverkefnum áður.

Siggi Palli spyr hvað betur mætti fara. Hvað bloggið varðar þá er formið á því orðið mjög þróað, sérstaklega eftir að stigakerfi Jóns Ben var tekið í notkun. Það eina sem ég myndi helst vilja sjá er að fá fyrirmæli um sérhæfðari greinar. Skemmtilegt hefði verið að fá t.d. fimm atriði sem hefði þurft að blogga um – t.d. myndatöku, hljóðvinnslu, klippingu, handritavinnu og leikstjórn. Það hefði neytt mann til að googla og kynna sér tæknilegar hliðar kvikmyndagerðarinnar, sem hefði þjónað markmiðum námskeiðsins enn betur.

Lítil hugmynd fyrir blogghlutann er að setja inn athugasemdahvatningu í einkunnagjöfina. Þetta er hugmynd sem ég hef komið með áður en finnst tilvalið að setja hana hérna fyrst beðið er um tillögur fyrir næsta vetur. Þá myndi einhver hluti námseinkunnar taka til athugasemda og að til dæmis þyrfti um 30 stuttar athugasemdir með einhverri pælingu til að fá fulla einkunn í þeim hluta.

En þegar ég útskrifast úr Menntaskólanum í vor mun ég minnast kvikmyndafræðibloggsins sem eins þess besta úr náminu við skólann. Þar fyrst fór virkilega heimanám og skemmtun saman. Þessi ævilanga og endalausa barátta um að berja saman annars vegar félagslífið og hins vegar námið var leikur einn í kvikmyndafræðinni – þetta var einfaldlega ótrúlega gaman. Svo skemmir ekki fyrir að heyra að fólk í kringum mann hafi lent á blogginu fyrir tilviljun eftir leit á google!

Stuttmyndir

Jafn stór hluti og ekki minna umdeildur nú en fyrirkomulag bloggsins á sínum tíma. Stuttmyndahlutinn hentaði mér ekki jafn vel og bloggið vegna þess að sú heimavinna þurfti að fara fram í lotum. Reyndar má færa rök fyrir því að það sé jafnvel gott – það er jú nær raunverulegri kvikmyndagerð – en að þurfa að taka frá heilu dagana fyrir heilan hóp til að taka stuttmynd er mjög erfitt. Ég fann minna fyrir því á haustmisserinu, en á vormisserinu var helvíti slæmt að lenda í stuttmyndagerð svona skömmu fyrir próf.

Engu að síður var stuttmyndagerðin virkilega skemmtileg. Líkt og á blogginu fékk sköpunargleðin alveg lausan tauminn þar, en munurinn er að í stuttmyndinni er hún ekki bundin við orð. Fyrri stuttmyndin, sú þar sem ekkert var klippt, fannst mér jafnvel skemmtilegri heldur en sú seinni. Þessi skemmtilegi rammi – að banna klippingu og láta allt vera gert í vélinni – sparar gríðarlega mikinn tíma og samt er hægt að gera góða stuttmynd. Það gefur líka virkilega góðan samanburð við síðan klippistuttmyndina.

Í seinni stuttmyndinni fannst mér hins vegar of mikil áhersla vera lögð á handrit. Gríðarlegt púður fór í handritagerðina í hópnum okkar og í raun fór hún alveg úr böndunum. Þegar að tökum var komið kom í ljós að hreinn ógerningur hefði verið að taka upp handritið og því þurftum við í raun að skipta því algerlega út. Mér finnst professional handrit í professional forriti ekki vera hluti af því sem ég vil taka út af námskeiðinu – þar finnst mér námskeiðið reyna að vera eitthvað sem það er ekki. Handrit í Celtx eru einfaldlega ætluð fyrir kvikmyndagerðarfólk sem hefur einhverja reynslu af t.d. stuttmyndagerð, en ekki fyrir nemendur sem eru að kynna sér fagið.

Í heildina eru stuttmyndirnar bráðnauðsynlegur og skemmtilegur hluti af námskeiðinu en ættu samt ekki að reyna að vera meira en þær eru. Handritakröfur ætti algerlega að slíta frá stuttmyndunum til að sköpunargleðin og skemmtunin fái sín notið í öllu ferlinu en sé ekki læst niður í orð frá upphafi. Handritahlutinn ætti einfaldlega að vera sér verkefni (ef hann ætti á annað borð að vera í þessu námskeiði) og hann ætti ekki að tengjast stuttmyndunum neitt. Einnig mætti gerð seinni stuttmyndarinnar fara fram mun fyrr á vormisseri, til að áhugi og metnaður sé enn til staðar.

Leikstjóraheimsóknir

Ég er hugsanlega enn undir áhrifum frá Ólafi Jóhannessyni þegar ég skrifa þetta, en þessi hluti var einnig algerlega framúrskarandi. Allir sem komu í heimsókn veittu okkur mjög mikla og góða sýn inn í heim kvikmyndagerðarinnar og sumir (lesist: Ólafur) jafnvel innblástur. Það voru reyndar mikil vonbrigði að fá ekki Baltasar Kormák, þekktasta nafnið, en maður fær víst ekki allt sem maður vill.

Mér finnst að markmið kvikmyndagerðar-námskeiðsins sé að skila nemendunum út með stjörnur í augunum yfir heimi kvikmyndanna og kvikmyndagerðarmanna, jafnvel í von um það að einhverjir láti til leiðast og reyni fyrir sér í þessum heimi eftir menntaskólann. Besta leiðin til þess eru án efa leikstjóraheimsóknirnar.

Fyrirlestrar

Hefðbundið skólaverkefni og ágætt sem slíkt – gaman að brjóta upp kvikmyndafræðitímana með fyrirlestrum. Þó er hægt að vera heppinn og óheppinn hér. Myndir Emir Kusturica voru til dæmis langtum skemmtilegri heldur en Nosferatu meistara F. Murnau. Ég velti því fyrir mér hvort ekki sé hægt að velja meira spennandi efni fyrir haustmisseris-fyrirlestrana heldur en gamla og misskemmtilega leikstjóra. Taka til dæmis fyrir kvikmyndastefnur á haustmisseri og síðan nútímaleikstjóra á vormisseri. Ég hef hins vegar alltaf verið minnsti talsmaður fortíðardýrkunar í kvikmyndafræðinni þannig að kannski sýnist sitt hverjum.

Skyldumyndir

Fyrsta umkvörtunarefnið hér myndi vera tímasetningin. Skyldumyndirnar hefðu betur mátt vera inni í venjulegri stundatöflu og væri vit að hafa tvo þrefalda tíma í staðinn fyrir þrjá tvöfalda á næsta skólaári. Mánudagar kl 16:10 gulltryggja einfaldlega að helmingur áhorfenda sé við það að líða útaf af þreytu (ég man til dæmis eftir Taste of Tea í móðu vegna þess að ég var svo gríðarlega gríðarlega þreyttur þegar við horfðum á hana). Tíminn hentaði fólki auk þess misvel.

Annað umkvörtunarefnið hér myndi síðan vera myndavalið. 8½ og Rules of the Game fóru langt með að drepa í mér alla von um almennilegt skyldubíó fyrir restina af vetrinum. Sem betur fer rættist úr því en þessar tvær myndir, ásamt nokkrum fleirum (sjá eldri bloggfærslur mínar), mættu fara beint í ruslakistuna.

Síðan spyr ég mig hvort skyldubíóið hefði ekki átt að einblína miklu meira á þá kvikmyndagerð sem er í gangi í dag? Rómantíska raunsæisstefnan frá þriðja áratug tuttugustu aldar í Frakklandi hefur litla sem enga þýðingu fyrir 20 ára nemendur í kvikmyndafræði-valáfanga árið 2008. Miklu skemmtilegra væri ef myndum sem þeim væri hent út og í staðinn sýndar t.d. stuttmyndasyrpur eða eitthvað álíka.

Önnur hugmynd að “skyldumynd” gæti verið auglýsingasyrpa. Ég man eftir að hafa séð safnspólur og síðar safndiska sem hétu Shots og innihéldu bestu auglýsingar heims á hverjum tíma. Ferskum hugmyndum, framúrstefnulegum pælingum og fyrst og fremst flottri kvikmyndagerð var beinlínis hellt yfir mann. Þessi tegund kvikmyndagerðar – auglýsingagerðin – er í rauninni ekkert annað en ör-stuttmyndagerð. Hún er meira að segja þannig að auglýsingar eru svo dýrar að ekki ein sekúnta má fara til spillis. Auglýsingar neyða því höfundinn til að ná hámarksnýtingu á forminu á sem allra stystum tíma – eitthvað sem er mjög spennandi að pæla í.

Loks fannst mér mjög skemmtilegt að vera skyldaður til að sjá allar íslenskar kvikmyndir sem komu út á tímanum. Ég hefði annars örugglega ekki séð helminginn af þeim og sérstaklega ef leikstjórinn kemur á eftir þá eru þessar sýningar gulls í gildi.

RIFF

Enn ein rósin í hnappagat þessa valfags. Ég stórefa að ég hefði farið á RIFF ef ekki hefði verið fyrir kvikmyndafræðina. Því miður lenti ég mjög illa í tímaskorti á meðan á hátíðinni stóð en þær tvær myndir sem ég fór á (Helvetica og My Kid Could Paint That) voru virkilega skemmtilegar og miklar andstæður við það sem ég sé ALLTAF í bíó. Kvikmyndagerðin opnaði allavega augu mín fyrir þessari hátíð og það er algerlega bókað mál að ég kaupi mér kort á næstu hátíð.

Talandi um hátíðir þá mætti kvikmyndagerðin hugsanlega gera eitthvað í tengslum við Óskarsverðlaunin, til dæmis skylda nemendur til að blogga eitthvað um þau og þá sem flesta flokka til að innsýn fáist inn í þau störf sem eru unnin til að framleiða stærstu kvikmyndir heims. Bara lítil hugmynd.

Lokapróf

Þetta er sá hluti námskeiðsins sem ég á eftir að upplifa, en ég verð að segja að mér finnst algerlega út í hött að allt sem ég sé búinn að skrifa um hér að ofan gildi samtals jafn mikið og þetta lokapróf. Það finnst mér vera algerlega úr takti við allt sem hefur verið í gangi í vetur því þetta fag öskrar beinlínis á að vera ekki próffag. Af hverju eigum við núna allt í einu að fara að læra utan að einhverjar staðreyndir sem einhverjir menn settu í einhverjar bækur fyrir kannski allt annan markhóp en okkur? Hvað gagn höfum við af því og hverju bætir það við námskeiðið? Og segjum að illa gangi – á þá að gefa nemanda sem hefur stundað alla hluta námskeiðsins af kappi í vetur lága stúdentsprófseinkunn vegna þess að hann kann ekki einhverjar skilgreiningar eða staðreyndir utan að?

Mér finnst þetta vera dökki punkturinn á námskeiðinu og grafa undan öllu öðru með því að skera það allt niður í 50% af því sem það raunverulega er bara til að geta fylgt einhverjum fyrirmælum að ofan. Þetta sýnir okkur einfaldlega að í MR kemst maður ekki upp með fag sem er bara skemmtilegt. Ónei, það þarf líka að smella á okkur enn einu risaprófinu svo við gerum okkur engar grillur. Þetta er reality checkið – ef einhver trúði því að kvikmyndafræðin væri of góð til að vera sönn, þá er prófinu ætlað að hrekja alla slíka vitleysu.

Það verður áhugavert að sjá hvað nemendur námskeiðsins fá í þessu prófi. Það er í hæsta máta ósanngjarn ef virkir og duglegir nemendur geti lent í því að allt sem búið er að byggja upp – 50-60 bloggfærslur, tvær stuttmyndir, eitt handrit, tveir fyrirlestrar, um 30 skyldumyndir og þrír tímar í viku – sé rifið niður í einu prófi.

---

Ég held að nú hafi ég gert ítarlega grein fyrir því hvað mér fannst um námskeiðið og hvernig mér finnst að það ætti að vera á næsta ári. Ég vona að ég hafi engu gleymt. Nú, ef ég hef einhverju gleymt, þá bæti ég því einfaldlega við! (bloggið er svo frábært að ég kemst ekki hjá því að hrósa því aftur) Ég vil að lokum nota tækifærið og þakka Sigga Palla fyrir frábært námskeið. Ég heyrði misjafnar sögur af kvikmyndafræðinni frá árinu áður, en þær breytingar sem Siggi Palli gerði á námskeiðinu eru greinilega nákvæmlega þær sem þurfti. Ég var tæpur á að velja kvikmyndafræðina á sínum tíma - ég var næstum því búinn að festa mig í bókfærslu sex sinnum í viku. Ég veit það að minnsta kosti fyrir víst núna að valið mitt á kvikmyndafræði er eitthvað sem ég mun aldrei sjá eftir.

Siggi Palli, takk fyrir mig!

Björn Brynjúlfur Björnsson, 6.Z

4 comments:

Siggi Palli said...

Margar mjög fínar athugasemdir sem verða örugglega teknar til athugunar:

- Eftir á að hyggja er ég sammála því að það var óráð að binda handrit og seinni stuttmynd svona þétt saman - það er greinilegt að sú binding hafði takmarkandi áhrif, til að mynda á mynd Ólympíuliðsins. Þessi ákvörðun var tekin með það í huga að þið mynduð nota aðferðafræði Film Directing Fundamentals við gerð myndarinnar, en síðan reyndist ekki nægur tími til þess að fylgja því eftir. Þar að auki myndi aðskilnaður handrits og stuttmyndar leyfa að seinni stuttmyndin yrði tekin í janúar, þegar betri tími gefst til. Ég hugsa að ég myndi samt ekki vilja fórna algjörlega handritaskrifunum.

- Ég er í grunninn sammála að það hefði mátt veita hvetja nemendur frekar til þess að kommenta á bloggið hjá hvorum öðrum. Þannig mætti lífga upp á þetta form enn frekar. Hins vegar væri frekar erfitt að fylgja þessu eftir í formi einkunnar.

- Það er góð hugmynd að fara fram á sérhæfðari færslur - að hafa einhverjar færslur sem eru beinlínis lítil verkefni.

- Varðandi tímann á bíótímunum, þá er algjör ógjörningur að koma þeim fyrir á stundaskrá. Ég hef beðið um breytingar, en vegna þess að tímarnir okkar verða að falla saman við tíma hinna valfaganna, þá gengur það ekki upp.

- Auglýsingamaraþon er góð hugmynd. Ég tek líka undir það að ég hefði mátt fara skipulegar í það að sýna ykkur stuttmyndir.

- Ég get ekki tekið undir það að við ættum að einblína á nýlegar myndir. Eldir myndir eru "acquired taste", en það er hluti af markmiði námskeiðsins að opna augu ykkar fyrir bæði eldri myndum og framandi myndum. Eftir á að hyggja hefði ég e.t.v. mátt velja meiri krádplísera, þ.e. frekar velja myndir sem væru líklegar til þess að falla í kramið og gera ykkur þannig opnari fyrir eldri myndum, frekar en að hugsa svona mikið um þessar lykilmyndir kvikmyndasögunnar.

- Ég tek hjartanlega undir það að áfanginn mætti vera próflaus. Ég ætla að reyna aftur að koma því í gegn, en er ekkert sérstaklega vongóður. Aftur á móti ætti prófið eins og það er nú uppbyggt ekki að valda ykkur miklum vandræðum, a.m.k. ekki ef þið hafið verið með á nótunum í vetur.

Takk fyrir fínar ábendingar.

Siggi Palli said...

Varðandi valfrjálsa verkefnið, þá á ég svolítið erfitt með að taka færslu sem þessari sem sérverkefni þótt hún sé góð. Til þess að ein færsla komi inn sem þetta sérverkefni, þyrfti að vera um heildstæða pælingu um eitthvað tiltekið efni að ræða (eins og t.d. færslan hans Árna um kvikmyndatónlist).
Aftur á móti get ég reynt að leyfa aukastigunum að flæða út í kennaraeinkunnina. Ég held að það myndi vera skynsamlegri lausn.

Siggi Palli said...

Vönduð færsla. 10 stig.

Siggi Palli said...

Þú endar þá í 126½ stigi.