Thursday, September 27, 2007

RIFF – tíu áhugaverðar myndir (seinni hluti)

Þetta er seinni hlutinn af listanum yfir þær myndir sem mig langar mest að sjá á RIFF í ár. Fyrri hlutann má sjá hér að neðan og inniheldur hann flokkana “Heimildarmyndir”, “Mannréttindi: Írak”, “Ísland í brennidepli” og “Miðnæturmyndir”.

Heimildamyndir
My kid could paint that / Krakkinn minn gæti málað þetta
Bandaríkin (2007)

Þessi hljómar mjög hress, hún fjallar um fjögurra ára stelpu sem varð heimsfrægur málari og seldi málverk á yfir 300.000 dollara! Stelpunni var líkt við Picasso og 60 minutes fjölluðu um málið. Þetta er mjög áhugavert efni, veltir upp spurningum um hvað sé list í raun og veru og hvað sé alvöru málverk og hvað sé einfaldlega rusl.


Mannréttindi: Írak
Iraq in fragments / Írak í brotum
Bandaríkin, Írak (2007)

Mig langar að sjá þessa mynd af því að hún er tekin upp í Írak og fjallar um þrjár ólíkar hliðar á Íraksstríðinu. Auk þess var hún tilnefnd til Óskarsverðlauna sem besta heimildarmynd ársins 2007, þannig að það hlýtur eitthvað að vera varið í hana.


Ísland í brennidepli
Sigur Rós – Heima
Ísland (2007)

Þessi mynd á varla heima hérna, mig langar ekkert sérstaklega að sjá hana, en Árna Þór Árnason langar svo gríðarlega að sjá hana að hann er búinn að smita örlítið frá sér. Ef ég sé hana þá ætla ég að fara á hana á opnunarsýningunni, það er örugglega stemning að fara á opnunarmyndina.


Miðnæturmyndir
Black Sheep / Svartir sauðir
Nýja-Sjáland (2006)

Hryllingsmynd um erfðabreytt sauðfé á Nýja-Sjálandi og tæknibrellumennirnir unnu við Lord of the Rings. Hljómar eins og góð blanda.


Miðnæturmyndir
Trippið / The Tripper
Bandaríkin (2006)

David Arquette leikstýrir þessari mynd, en mér hefur alltaf fundist hann skemmtilegur. Auk þess að vera hryllingsmynd gerir hún mikið grín að sjálfri sér, sem hljómar frumlega og vantar oft í bíómyndir. Auk þessa á myndin að vera rammpólitísk. Mér finnst mjög spennandi að sjá hvernig Arquette fer að því að sameina hryllingsmynd og pólitíska ádeilumynd.


Það tók mig næstum klukkustund að skoða dagskránna og myndirnar sem eru í boði, en alls eru 80 myndir á RIFF í ár. Það er mjög erfitt að ákveða hvaða myndir eru þess virði að fara á út frá dagskránni einni saman. Feedback á listann og uppástungur um myndir sem ættu einnig að vera á listanum væri því vel þegið!

2 comments:

Siggi Palli said...

Góður listi og skemmtilegt hvað þetta eru allt aðrar myndir en mig langar á. Af þessum myndum eru það helst Hjálpaðu mér Eros, 4 mánuðir... og Tímabundið frelsi sem mig langar á. Það verður gaman að heyra álit þitt á einhverjum hinna.

Bóbó said...

Vil bara leggja til að þú haldir Híenu utan listans eins lengi og mögulegt er, því þar er ein skelfileg mynd á ferð.